Það eru hvorki meira né minna en þrjár Heklur staddar á Akureyri á þessari stundu. Munu þetta vera Norðurlandsdrottningin ég, Steinunn og Guðmunda. Stefnan er tekin á hitting í kvöld og ég mun svo sitja á fremsta bekk þegar Steinunn flytur erindi sitt á kynningarfundi Unifem á morgun.
Friday, April 03, 2009
Status update
Posted by Heklurnar at 7:01 PM |
Sunday, February 08, 2009
Yrsa litla Guðmundu- og Sigurgeirsdóttir er fædd!


Posted by Heklurnar at 10:02 PM |
Tuesday, January 13, 2009
Orlofsferð Heklanna 2009
Posted by Heklurnar at 10:19 PM |
Thursday, January 08, 2009
Skíðaferðin!
Posted by Heklurnar at 2:41 PM |
Monday, January 05, 2009
Opinn orlofsfundur Heklanna
...verður haldinn á Kvisthaga 27 miðvikudaginn 7.jan kl.21.00
Þar verða praktísk mál helgarinnar rædd og að sjálfsögðu eru allar Heklur velkomnar sama hvort að þær ætli sér norður í í orlof eða ekki.
Hlakka til að sjá ykkur
Marta
Posted by Heklurnar at 8:38 PM |
Sunday, December 07, 2008
Hverjar koma með í norðlenskt orlof?
Hamratúnið er enn laust og þá er bara sp. um að skella í bókun?
Leigan er 11.500 fyrir helgina (fös-sun). Við þurfum bara að fá á hreint hverjar ætla með til þess að vita hvað við borgum á haus. Svo væri nú ekki úr vegi að finna út hvað norðlenska paradísin býður upp á fyrir svona konuhóp í helgarreisu, er ekki eitthvað ægilega menningarlegt sem við þurfum að kynna okkur? Leikhús og skíði, hvernig hljómar það?
Svo kom upp sú hugmynd að sleppa Greifanum og Hótel KEA í þetta skiptið en vera þess í stað í gourme eldamennsku allan tímann svona á milli þess sem maður skreppur í pottinn og hristir kokteila? Ég er allavega þokkalega til í það
Jæja dúllur, látið vita í kommentakerfið hvort þið eruð með eða ekki!
Hekla Björt
Posted by Heklurnar at 4:40 PM |
Thursday, December 04, 2008
Heklur í orlofi
Það er svo langt síðan ég skrifaði á þetta blogg að mér finnst stórmerkilegt að ég hafi munað notandanafnið og lykilorðið!
En það er komið að Norðanferð Heklanna sem tekið hefur 4 ár að undirbúa. Orlofið er ekki langt undan með tilheyrandi krumpugöllum og alkóhól. Það er aðeins eitt sem brennur á mér. Er búið að panta orlofsíbúðina?
-Frú Steinunn-
Posted by Heklurnar at 2:06 PM |
